22.05.2008 08:54:16 / Bibbi
Er ekki orðið tímabært að við íslendingar förum að sýna örlitla samstöðu. Fólk hlýtur að vera þreytt á þeim endalausu verðhækkunum sem dynja yfir okkur nánast á hverjum degi. Ég bjó um tíma í Danmörku, ef einhver vara hækkaði í verði þar, hætti fólk einfaldlega að kaupa hana og svona er þetta víða í heiminum, fólk hættir að kaupa vöruru eða þjónustu sem hækka óeðlilega. Þetta þurfum við íslendingar að læra, læra að standa saman. Við eigum að halda að okkur höndum og þrýsta á verðlækkanir með því að hætta að kaupa vörur eða þjónustu sem við getum verið án og spara eins og við getum, ekki láta bjóða okkur þetta endalaust. Við getum líka þrýst á eldsneytislækkun með því að sameinast í bílum, í búðina eða vinnuna, nota allmenningsvagna og reyna að spara eldsneyti eins og við getum, það er alveg víst að eldsneyti lækkar ef salan drekst veruleg saman. Það er alveg sama hvert er litið allt hefur hækkað og er að hækka. Nýjustu launasamningar eru gjörsamlega foknir út um gluggann, að ekki sé minnst á lækkanirnar sem urðu á matvöru á síðasta ári, þetta er allt horfið og vel það. Það er ekki nokkur hemja að bensínlíterinn kosti um 160kr. og fer hækkandi, díselolían að nálgast 200kr. Því var lofað þegar þungaskatturinn var tekin af að díselolína yrði ódýrari en bensínið, það hefur ekki verið staðið við þetta frekar en annað sem stjórnvöld lofa. Þessi blessaða ríkisstjórn er algerlega máttlaus. Síðan hún komst til valda hefur flest farið niður á við í þjófélaginu, verðbólgan er komin á skrið, krónan hefur hríð fallið, vextir hafa hækkað, Það er orðið mun erfiðara að lifa í dag heldur en það var fyrir ári síðan. það virðis ekkert vera gert til að sporna við þessari þróun, er fólkið sem kosið var til að stjórna landinu ekki að vinna vinnuna sína? Við skulum athuga það að fólkið á þinginu, ríkisstjórnin er í vinnu hjá okkur, fólkinu í landinu og ef það stendur sig ekki eigum við alls ekki að kjósa það aftur til valda. Það eru ekki þingmenn eða ráðherrar sem eru að skapa hin raunverulegu verðmæti í þessu landi, það gerir hins vegar fólkið í frystihúsunum, sjómenn, bændur, verkafólkið og svo framvegis. Það virðis vera hægt að eyða stórum fjámunum í flest annað en mannsæmandi laun handa þeim sem lægst hafa launin. Eitt af kosningarloforðum þessarar ríkisstjórnar var að bæta verulega kjör aldraða og öryrkja, þetta hefur ekki verið gert. Það er til skammar hvernig komið er fram við aldraða, aldraðir eiga að fá að njóta æfikvöldsins án þess að þurfa að vera með áhyggjur af fjármálum. Þeir eiga t.d. ekki að borga skatta og eiga í raun að fá frítt rafmagn, hita, sjónvarp, að ekki sé talað um lyf og læknisþjónustu. Ég get ekki hætt án þess að minnast aðeins á bankanna. Það er ótrúlegt að bankarnir í landinu komast upp með það að níðast á viðskiptavinum sínum með þvílíkri okurvaxtastefnu að það hálfa væri nóg. Lánin okkar hafa hækkað svo um munar vegna hruns krónunar svo ofan á þetta allt saman erum við að borga verðtryggingu, löngu úrelt fyrirbæri sem hvergi fyrirfinnst annarstaðar í heiminum. Það er ansi hart að það skuli endalaust vera hægt að koma svona fram við fólk og það er löngu orðið tímabært að stjórnvöld fari að snúa sér að því að standa vörðu um velferð fólksins í landinu.
»
22.05.2008 08:44:49 / BlogCentral
Eigandi þessa nýja bloggs hefur ekki gefið út fyrstu bloggfærsluna sína. Viðkomandi er án efa í óða önn að velja sér flott útlit, aukahluti, hlaða upp myndum og semja meistaraverk til að færa á spjöld sögunnar. Við bjóðum viðkomandi að sjálfsögðu velkominn á BlogCentral!
»